Að láta verkin tala

Í dag eru tvö ár liðin frá því ég tók við embætti dómsmálaráðherra. Kjörtímabilið var þá hálfnað og ljóst að það þyrfti að bretta upp ermar til að ná markverðum breytingum í anda Sjálfstæðisstefnunnar áður en kjörtímabilinu lyki. Við réðumst meðal annars í stórsókn í stafrænni þróun undirstofnana ráðuneytisins og breyttum lögum þannig að foreldrar […]

Uppbygging á Litla-Hrauni

Ríkisstjórnin samþykkti nýlega tillögu mína um að ráðast í uppbyggingu fangelsisins á Litla-Hrauni. Í fangelsinu, sem var upphaflega reist sem sjúkrahús, er um helmingur allra fangelsisrýma í landinu en það uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem gera verður til slíkrar starfsemi. Má í því sambandi vísa í úttektir nefndar Evrópuráðsins um varnir gegn pyndingum o.fl. […]

Skilvirkar aðgerðir gegn skipulögðum glæpum

Eitt mikilvægasta verkefni lögreglunnar á næstu árum er baráttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Lögreglan telur að 15 slíkir hópar séu að störfum í landinu. Margir þeirra stunda rekstur samhliða lögbrotunum til að styðja við ólöglegu starfsemina og til að þvætta peninga. Hóparnir eru af ýmsum þjóðernum og starfa flestir bæði innanlands og utan. Þessi veruleiki kallar […]

Drifkraftur efnahagslífsins

Eitt mikilvægasta verkefnið sem blasir við þjóðinni er að ná atvinnuleysinu niður. Þessi vágestur hefur ekki einungis í för með sér efnahagslega erfiðleika heldur einnig félagslegar afleiðingar sem erfitt er að meta til fjár. Um 11 þúsund manns hafa misst vinnuna frá því faraldurinn gerði fyrst vart við sig í fyrra og nú eru um […]

Meðalhófið skiptir máli

Eftir því sem áætlanir um bólusetningar ganga eftir mun þjóðlífið hér innanlands smám saman færast í eðlilegt horf í sumar. Á allra næstu dögum verða slegin met hér á landi í fjölda þeirra sem fá bólusetningu. Jafnframt er útlit fyrir að aukinn þungi færist í bólusetningar innan ríkja Evrópusambandsins á næstu vikum. Því má gera […]

Frumhlaup frá vinstri

Fyrr í vik­unni var full­yrt í frétt­um að viðbrögð stjórn­valda í far­aldr­in­um hefðu verið síðbún­ari og kraft­minni en í þeim lönd­um sem við ber­um okk­ur sam­an við. Þess­ar fregn­ir byggðust á röng­um upp­lýs­ing­um frá Alþjóðagjald­eyr­is­sjóðnum sem nú hef­ur leiðrétt mis­skiln­ing­inn. Um­fang aðgerðanna var sagt um tvö pró­sent af lands­fram­leiðslu hér á landi en hið rétta […]

Mikilvægt skref til framtíðar

Stundum er sagt að svo megi illu venjast að gott þyki. Það er nokkuð lýsandi fyrir undanfarið ár. Allan þann tíma sem faraldurinn hefur geisað höfum við þurft að vega og meta stöðu ólíkra hópa í samfélaginu. Allar ákvarðanir í slíku ástandi eru þess eðlis að hagsmunir og heill einhverra hafa beðið hnekki. Hjá því […]

Fósturlandsins Freyja

Landhelgisgæslan er ein af grunnstoðum öryggis þjóðarinnar og hlutverk hennar verður seint ofmetið. Á það erum við stöðugt minnt þegar náttúruöflin láta til sín taka. Við höfum ætíð búið við ógn af völdum náttúrunnar og verið meðvituð um afl hennar frá því að land byggðist. Mikilvægt er að Landhelgisgæslan búi yfir öflugum tækjakosti og búnaði […]

Verkefni sem við tökum alvarlega

Skipulögð brotastarfsemi hefur verið að færast í aukana hér á landi á síðustu árum. Við því þarf að bregðast. Að mati lögreglunnar eru nú starfandi 15 hópar í landinu sem má flokka sem skipulagða brotahópa. Margir þeirra stunda löglegan rekstur af ýmsu tagi samhliða lögbrotunum. Löglega starfsemin er þá nýtt til að þvætta fjármuni eða […]

Lítil en mikilvæg skref

Nú er liðið tæpt 31 ár frá því bjór var leyfður á Íslandi, en hann hafði þá verið bannaður í rúm 70 ár. Sjálfsagt myndu fáir vilja banna hann á ný í dag og þrengja þannig að valfrelsi einstaklinga. Það er hins vegar rétt að hafa í huga að afnám bjórbannsins varð ekki til af […]